
Hvað gerist þegar þú sefur?
Öll spendýr og fuglar sofa, jafnvel fiskar og skordýr sýna einkenni svefns. En hvað gerist þegar þú sefur og hvernig hefur það áhrif á kvíða?
Þegar þú sefur notar líkaminn 10% minni orku í allt sem hann gerir, þar sem hjartsláttur, öndun og líkamshiti lækkar mikið. Margir virðast halda að í svefni sé heilinn, eins og líkaminn þinn, að hvíla sig. Það er hins vegar ekki satt því í svefni gerir heilinn þveröfugt við það. Þegar við sofum er heilinn að vinna meira en þegar þú ert vakandi. Vöðvar vaxa, taugavefir gera við sig, vaxtarhormónum er sleppt og ýmsir aðrir mikilvægir hlutir eiga sér stað. Heilinn þarf jafn mikið á svefn að halda og líkami okkar. Nýlegar rannsóknir sýna fram á að svefn leyfir heilanum að yngja sig og endurskipuleggja sig og sína starfssemi. Þessi kenning kallast „Brain Plasticity.“ Það ætti því ekki að koma neitt á óvart að það sem gerist á meðan þú sefur er verulega mikilvægt og nauðsynlegt fyrir heilbrigt líf.
