top of page

&

 K V Í Ð I   

S V E F N

Hvað er kvíði?

Í gegnum árum hafa ótti og kvíði verið notuð á víxl en þó svo að þeim er ruglað saman, er ótti skilgreindur sem eðlilegt viðbragð við augljósri hættu á meðan kvíði er skilgreindur sem viðbragð við óraunsærri eða ímyndaðri hættu. Þar að auki er óttaviðbragð í réttum hlutföllum við raunverulegu hættuna en kvíðaviðbrögð eru oft ákafari og úr réttu hlutfalli í samanburði við hættuna sem steðjar að. Ótti er í raun viðbragð sem virkjast þegar manneskja stendur frammi fyrir einhverju sem hún hræðist en kvíði virkjast við aðstæður eins og valkvíða eða mögulegri ógn um velferð. Til þess að kveikja á viðbragðinu þarf það eitt að draga ályktun um mögulega hættu eða ógn. Þessi viðbrögð hafa bjargað okkur í aldanna rás, en án þeirra var hætta á að fólk hefði líklegast dottið fram af björgum, lokast inni eða orðið villidýrum að bráð.
            Rétt eins og með aðra andlega sjúkdóma er nokkur erfðaþáttur í því hvort fólk fái kvíðaröskun eða ekki. Sannað hefur að allar helstu kvíðaraskanir erfast að einhverju leyti og er arfgengi þeirra um 30 til 40%. Ýmis konar mótlæti í æsku getur einnig haft áhrif á hvort einstaklingur þrói með sér kvíðaröskun. Dæmi um það er til að mynda skilnaður eða missir foreldris og kynferðislegt ofbeldi. Barnæskuárin eru mjög viðkvæm og ef til dæmis foreldri barns er kvíðið eru miklar líkur að barnið fái kvíða. Ekki aðeins vegna erfðaþáttarins heldur einnig vegna þess að þegar barn er að mótast tekur það ýmislegt til sín sem það sér í umhverfinu. Ef foreldri þess er stanslaust kvíðið og hrætt byrjar barnið smám saman að herma eftir foreldri sínu.

           
           

Líkamleg einkenni kvíða

  • Kyngingarerfiðleikar 

  • Skjálfandi rödd

  • Fiðrildi í maga             

  • Köfnunartilfinning              

  • Spennt raddbönd

  • Verkir

  • Tíð þvaglát        

  • Roði eða fölvi

  • Niðurgangur                 

  • Hita- eða kuldaköst              

  • Grátur eða hlátur

  • Ógleði

  • Svimi               

  • Sviti    

  • Sjóntruflanir

  • Þrengt sjónsvið

  • Minnkuð kynhvöt            

  • Þrengt sjónsvið

  • Vöðvaspenna                

  • Ör hjartsláttur        

  • Slök einbeiting

  • Máttleysi                       

  • Þungur hjartsláttur           

  • Óskýr hugsun

  • Brjóstverkur                 

  • Grunn og ör öndun           

  • Skjálfti

  • Andþyngsli                       

  • Kökkur í hálsi          

  • Doði

  • Garnagaul    

  • Munnþurrkur              

  • Minnkuð kynhvöt            

bottom of page