top of page

Áfallastreituröskun

Áfallastreituröskun er röskun sem getur hlotist af alvarlegu áfalli sem fólk verður fyrir, þar sem lífi eða velferð þess er ógnað. Áfallastreituröskun er nokkuð algeng og fær um 10% fólks hana einhvern tímann á ævinni. Fjölskyldur fórnarlamba geta einnig fengið áfallastreituröskun. Flestir sem upplifa eitthvað sláandi finna fyrir reiði, kvíða eða hræðslu og þessar tilfinningar eru allar eðlileg viðbrögð. Þessar tilfinningar fara með tímanum en manneskja með áfallastreituröskun finnur fyrir sterkari tilfinningum og á mun erfiðara með að jafna sig eftir atburðinn. 

Fólk forðast allt sem minnir á atburðinn en endurupplifir hann, fær martraðir eða sér hann ljóslifandi fyrir sér. Fólk verður daufara og áhugalausara en það á að sér og á almennt erfitt með að finna fyrir jákvæðum tilfinningum.  Það finnur hins vegar oft fyrir líkamlegri spennu, svefntruflunum, pirringi eða reiði, einbeitingarerfiðleikum, er alltaf á varðbergi og því bregður auðveldlega. Ef manneskja hefur verið með áfallastreituröskun í meira en einn mánuð verður hún aldrei jafn andlega heilbrigð og hún var fyrir slysið.

bottom of page