top of page

Niðurstaða

Hvað er kvíði, hverja hrjáir hann helst og hefur hann í raun og veru aukist  á undanförnum árum?

 

Þetta er rannsóknarspurningin okkar. Hún hefur þróast mjög mikið frá fyrstu mynd en þá var hún mikið einfaldari og leyfði aðgang að miklu minna efni.

 

Um leið og við komumst af stað höfðum við ljóslifandi  mynd um hvernig við vildum að verkefnið yrði.  Við hófum rannsóknina strax og byrjuðum á að lesa okkur til um efnið. Við könnuðum hvað kvíði er, en okkur fannst ekki nógu miklar heimildur um hvar kvíði kæmi helst fram. Við ákváðum því að dreifa könnun á netinu þar sem við spurðum spurninga um efnið. Hægt er að nálgast könnunina hér. Þegar við vorum búin að afla okkur nógu mikilla upplýsinga hófum við að skrifa texta. Við skrifuðum fyrst í word en færðum það svo yfir á vefsíðuna okkar Við ákváðum að hanna vefsíðu þar sem okkur fannst sá kynningarmáti passa best við efnið.

            Við rannsökuðum kvíða og tegundir hans, svefn og tenginguna hans við kvíða auk áhrif hans á unglinga og hreyfingu og útivefu og áhrif þeirra á líðan. Það voru spurningar um allt þetta í könuninni.

Við ákváðum að við vildum taka viðtal til að kanna hvort kvíði hafi í raun aukist á síðustu árum. Vandamálið var hins vegar að við vissum ekki við hvern við áttum að taka það. Það tók okkur nokkurn tíma að finna manneskju en á endanum sendum við póst á Kvíðameðferðastöðina og fengum að taka viðtal við Ellen Sif Sævarsdóttur, sálfræðing.  Í því viðtali komumst við að því að kvíði hefur aukist á undanförnum árum, en ekki er vitað hvort það sé vegna ofgreininga, aukinnar umræðu, samfélagsmiðla, skorti hreyfingar og útiveru eða hreinlega vegna allra þessara hluta.

 

Við höfum lært heilmargt á þessum þrem vikum sem við höfum unnið að verkefninu. Margt sem er bæði áhugavert og verulega sláandi.

Við höfum kannað áhrif samfélagsmiðla á kvíða og séð hversu slæmt ástandið sem við erum í er. Það hanga allir bara í símunum og nenna ekki út að leika sér. Allir unglinar hafa upplifað spurninguna; “Á ég að horfa á nýjasta þáttinn af uppáhalds seríunni minni eða fara út að hreyfa mig?” Svarið verður í flestum tilfellum það fyrra.

 

Þetta hefur verið langt, erfitt en á saman tíma áhugavert ferli sem hefur kennt okkur margt sem við munum taka með okkur út í lífið. Þrátt fyrir að við reyndum að fá svar 100% svar við rannsóknarspurningunni þá, sama hvað við reyndum, er það ekki hægt. Þetta efni er bar ekki svoleiðis. Þrátt fyrir að við öfluðum okkur eins mikla upplýsinga og við gátum fengum aldrei neitt nákvæmt svar, þetta efni er ekki bara svart og hvítt.

 

Eftir alla rannsóknina getum við fullyrt voðalega fátt. Við getum reiknað með og cirkað en afar sjaldan sagt að eitthvað sé á einn hátt og því fær aldrei breytt

bottom of page