
Felmturröskun
Það er óþægilegt að verða mjög hræddur eða felmtri sleginn. Í vissum aðstæðum er það eðlilegt, ekki síst þegar fólk er í hættulegum aðstæðum. Sumir fara aftur á móti að fá endurtekin og ofsafengin óttaköst sem ná hámarki sínu innan nokkurra mínútna, þar sem fólk finnur fyrir sterkum líkamlegum einkennum. Þessi vandi nefnist ofsakvíði, öðru nafni felmtursröskun. Í þessum köstum gera a.m.k. fjögur af eftirfarandi einkennum vart við sig: Hjartsláttur, svimi, sviti, skjálfti, köfnunartilfinning, andnauð, óraunveruleikatilfinning og ótti við að
eitthvað hræðilegt sé að gerast eins og köfnun, hjartaáfall, geðveiki eða dauði. Fólk verður skiljanlega mjög hrætt við þessa upplifun og hefur áhyggjur af því að eitthvað alvarlegt sé að. Það fer að óttast frekari köst og jafnvel forðast aðstæður eða athafnir þar sem frekari köst gætu gert vart við sig (víðáttufælni). Allt að 10% fólks fær eitt eða fleiri kvíðaköst á ævinni en um það bil 3,5 % fólks þróar með sér ofsakvíða, það er að segja óttann við frekari kvíðaköst.