
Viðtal
Hvernig kvíða ertu með?
Ég held að ég sé með kvíðaröskun. Ég greindist allavega með kvíða þegar ég var mjög lítil. Þá var ég með frekar mikinn kvíða og var límd upp við mömmu mína. Ég var 9 ára gömul og gat varla farið frá henni.
Veistu hvernig þessi kvíði byrjaði?
Nei, ég veit að ég þorði ekki að labba ein í skólann, ég þorði ekki að labba yfir götu, þorði ekki að vera ein inni í bíl út af innilokunarkenndinni. Ég náði að komast yfir það en innilokunarkenndin er ennþá til staðar.
Hvenær byrjaðir þú í sálfræðimeðferð?
Ég hef farið til þriggja sálfræðinga. Það var einn sem tók mig í meðferð þegar ég var 9 ára. Ég byrjaði síðan aftur 2014 og er þar ennþá.
Hvaða mun sérðu á þér núna og í byrjun meðferðarinnar?
Ég sé alveg nokkurn mun, ég er búin að losa mig við minn versta kvíða. Þetta var sett upp sem áætlun. Ég tók bara eitt skref í einu og það gekk mjög vel.
Er einhver kvíði í fjölskyldunni þinni?
Já, það er mikill kvíði í föðurætt. Amma mín er með kvíða, en hún er farin að ná stjórn á honum. Ég er ennþá ung þannig ég er ennþá að læra á þetta. Ég er samt alveg farin að geta stjórnað honum nokkuð vel.
Hvaða aðferð notar þú þegar þú ert að fá kvíðakast og ert að reyna að róa þig niður?
Ég næ oft að hugsa út í góðu hlutina núna, en fyrir hálfu ári gat ég það ekki. Ég var alltaf neikvæð og allt var glatað og allt var ömurlegt.
Ertu á einhverjum kvíðalyfjum?
Já, ég er kvíða- og þunglyndislyfjum.
Hvaða breytingum hefur þú tekið eftir síðan þú byrjaðir á lyfjum?
Ég hef alltaf verið mjög neikvæð en núna get ég litið á björtu hliðina á hlutunum. Stuttu eftir að ég byrjaði á lyfjunum var ég meira til í að gera hlutina, í staðinn fyrir að væla yfir þeim. Ég komst líka yfir versta kvíðann minn sem ég glímdi við í 6 ár. Hann er alveg horfinn og ég er ekkert hrædd við hann lengur.
Hvernig kom kvíðinn fram í skólanum?
Hann kom oftast fram í skólanum en ég náði að halda honum inni þar til ég kom heim og þar “fríka ég út”. Ef það er of mikið að læra eða þetta er erfitt verkefni finn í fyrir kvíðanum. Þótt mig langi að ná góðum árangri í skóla, þá kemur fyrir að ég bara geti ekki byrjað að vinna verkefnið og þarf að láta vini mína sannfæra mig til þess. Ég á mjög erfitt með ensku og dönsku og ég verð stundum brjáluð yfir því að ég sé ekki að ná árangrinum sem ég óskaði.
Hvernig er hlutfallið milli kvíða innan skólans og utan skólans?
Mér finnst kvíðinn innan skóla mikið meiri. Kvíðinn utan skóla kom ekki oft fram og það voru bara tvö ákveðin vandamál sem ég kveið fyrir. Ég myndi segja að kvíðinn utan skóla væri 30% kvíðans en hann er alveg 70% innan skólans. Það kom fyrir að það var mjög mikið heimanám eða ég vildi bara ekki vera í skólanum. Mig langaði bara að vera heima og liggja í rúminu en ég veit að það gerir ekkert gagn. Frekar bara að standa upp og fara í skólann.
Í byrjun skólaársins fór ég að æla alltaf á mánudögum sem var grunsamlegt og þetta voru ekki bara veikindi.
Finnur þú fyrir breytingum á skapi þegar þú ert á æfingum?
Já, ég finn alveg mikinn mun. Ég hætti á æfingum í einhvern tíma og þá ar ég yfirleitt bara heima í rúminu mínu eftir skóla. Síðan byrjaði aftur og tók eftir muni. Ég var meira til í að gera hlutina. Þegar ég fer í ferðalag með skólnum eða eitthvað og við förum í skotbolta eða eitthvað verð ég mjög hamingjusöm og næ að gleyma öllu.