top of page

Útivera & hreyfing

Rannsóknir sýna skýrt að kvíði hjá unglingum hefur hækkað og þá um 11,67% hjá stelpum en aðeins um 1,86% hjá strákum (Sjá línurit hér til hliðar). En er skortur á hreyfingu og útiveru hluti af hækkuninni?
            Í gamla daga þegar mömmur okkar og pabbar voru yngri eyddu þau næstum allri barnæsku sinni úti í leikjum. Það var alltaf hægt að finna börn á þeirra aldri úti í snjókasti, hoppandi í pollum eða klifrandi í trjám, sama hvernig veðrið var. Jafnvel þegar krakkar á okkar aldri voru yngri eyddu þau tíma sínum úti, þrátt fyrir tilveru tölva. Núna eru tímarnir breyttir. Fullorðnir sem börn og unglingar eru stöðugt með nefið ofan í snjallsímum eða með augun límd við tölvu eða sjónvarpsskjáa. Útiveru unglinga og barna fer hrakandi. Það eru allt og fáir krakkar nú til

dags úti í leikjum eða í hjólatúrum. Börn vilja heldur vera inni í „Ipödunum“ sínum eða í Playstation tölvunni sinni. Margir fræðimenn sem hafa rannsakað þetta telja að skortur útiveru og hreyfingar hjá krökkum nú til dags sé stór hluti í hækkun kvíða á síðustu árum. Hreyfing og útivera er góð fyrir heilann vegna þess að þegar þú hreyfir gefur heilinn frá sér efni sem kallast endorfín sem örva hamingju og minnka sársaukatilfinningar. Ef börn og unglingar hætta að hreyfa sig og vera úti í náttúrunni hætta þessi efni að framleiðast og, þó þau fatti ekki ástæðuna, þá líður þeim verr.
            Ekki nóg með það að útivera og hreyfing getur dregið úr líkum kvíða, þá geta þær einnig hjálpað við að meðhöndla kvíða. Rannsóknir hafa endurtekið sýnt fram á að reglubundin hreyfing, sérstaklega úthaldsþjálfun, getur dregið verulega úr kvíða og öðrum andlegum sjúkdómum. Þar að auki hafa verið gerðar samanburðarrannsóknir á fólki með alvarlegt þunglyndi og alvarlegan kvíða þar sem lyfjameðferð og hreyfing hafa verið bornar saman. Rannsóknirnar gáfu til kynna að báðar meðferðirnar virka jafn vel á miðlungsalvarlega andlega sjúkdóma þ.e.a.s. kvíða og þunglyndi. Eini munurinn var sá að lyfin byrjuðu að virka fyrr en hreyfingin, en ef þú hreyfir þig reglulega ert þú líklegri til að halda niðri einkennunum lengur en ef þú tækir einungis lyf.

bottom of page